Opnað fyrir miðasölu á herrakvöld Þórs

Herrakvöld Þórs fer fram laugardaginn 30. maí næstkomandi og dagskráin hefur aldrei verið glæsilegri!
 
Miðasala hefst kl. 12:00 á hádegi í dag.

Til að tryggja þér sæti þarftu að senda tölvupóst á herrakvold@thorsport.is.
 
Landslið skemmtikrafta stígur á svið, en það eru:
• Gummi Ben
• Auddi
• Steindi
• Friðrik Dór
• Stebbi Hilmars
• Birnir
• Ká Aká
 
Við hvetjum Þórsara til að tryggja sitt sæti áður en það verður um seinan.