Páll Halldór Jónsson - Minning

Minning

Í dag þriðjudaginn 31. mars verður Páll Halldór Jónsson jarðsunginn frá Glerárkirku.

Páll lést þann 23 mars s.l á 87. aldursári.

Palli var gegnheill Þórsari allt frá blautu barnsbeini allt til hinnar hinstu stundar.

Páll hóf ungur að iðka knattspyrnu þá göfugu íþrótt og vakti strax athygli fyrir lipurð á velli, útsjónarsamur og var hann einstaklega sprettharður.

Palli lék um langt árabil knattspyrnu með Þór og ÍBA á gullaldarárum þessa mæta félags.

Palli var afar dugmikill, ekki bara sem knattspyrnumaður heldur lét hann félagsstörf í þágu Þórs sig miklu varða. Hann var m.a. fulltrúi knattspyrnudeildar í aðalstjórn Þórs 1959 og svo varamaður í aðalstjórn árið 1960. Tók aftur sæti í aðalstjórn árið 1965 sem fulltrúi knattspyrnudeildar.

Árið 1969 var hann ritari í knattspyrnuráði ÍBA, sem fulltrúi Þórs og 1969 var hann formaður í knattspyrnuráði ÍBA fyrir Þór.

Auk þess sem hann stundaði knattspyrnu af kappi kom hann að þjálfun yngri flokka félagsins um árabil.

Páll var sæmdur silfurmerki félagsins á 75 ára afmæli Þórs 1990 og 15 árum síðar var hann sæmdur gullmerki Þórs á 90 ára afmælis Þórs árið 2005.

Páll var einnig sæmdur silfurmerki KSÍ á 25 ára afmæli ÍBA árið 1972.

 

Palli var einn af þessum sem var félagi sínu trúr sama hvort var í meðbyr sem í andbyr, hvatti menn til dáða og frá honum var ekki gusturinn, en festa þó og alvara í hverju orði og var hann sannarlega stoltur Þórsari og góður félagi allt sitt líf.

 

Íþróttafélagið Þór kveður hér í dag prúðan og góðan félaga með kærri þökk fyrir samfylgdina.

Hans verður minnst með mikilli virðingu, eftirsjá og af þakklæti fyrir allt það óeigingjarna sjálfboðastarf hans og trúmennsku í þágu félagsins.

Íþróttafélagið Þór sendir Kristínu Sveinsdóttur eftirlifandi eiginkonu Páls og fjölskyldu og vinum innilegar samúðarkveðjur.

Hvíl í guðs friði kæri félagi.

Hver minning er sem dýrmæt perla.

Páll Jónsson Akureyrarmeistari 1965