Pílukast: Ólöf Heiða og Óskar félagsmeistarar í krikket

Fjölmennasta meistaramót Þórs í krikketleiknum í pílukasti í manna minnum fór fram í gær. 

Alls voru 40 keppendur skráðir til leiks, 30 karlar og tíu konur. Ólöf Heiða Óskarsdóttir vann í kvennaflokki, Kolbrún Gígja Einarsdóttir varð önnur og þær Hrefna Sævarsdóttir og Sunna Valdimarsdóttir í 3.-4. sæti. Í karlaflokki varði Óskar Jónasson titilinn frá því í fyrra, Viðar Valdimarsson varð annar og þeir Aðalsteinn Helgason og Jón Svavar í 3.-4. sæti.

Útsláttarkeppni í kvennaflokki, smellið á myndirnar til að skoða nánar.

Úsláttarkeppni í karlaflokki, frá 16 manna úrslitum.