Rjómavöfflur og rjúkandi súkkulaði í Hamri

Grobbarar, félagsskapur eldri Þórsara, bjóða upp á rjómavöfflur með tilheyrandi tvo næstu föstudaga í Hamri, 9. og 16. desember.

Gestum og gangandi er boðið að kíkja við í Hamri og þiggja vöfflur í boði Grobbara. Vöfflujárnið verður hitað að morgni föstudagsins 9. desember kl. 9-11 og aftur kl. 16-18. Sama verður uppi á teningnum föstudaginn 16. desember. Sjá nánar á myndinni hér að neðan.