Skilaboð frá formanni

Nói Björnsson, formaður Þórs.
Nói Björnsson, formaður Þórs.

Ágætu Þórsarar.

Núna um mánaðarmótin september/október er eindagi árgjaldsins hjá félaginu okkar.

Þórsarar við treystum á ykkur, samstaða hefur verið okkar aðalsmerki, það sýndi sig vel varðandi uppbygginguna á stúkunni við Ásinn, frábært afrek og frábær þátttaka. Takk fyrir.

Núna höldum við áfram og tökum árgjöldin með trompi. Árgjöldin eru mikilvægur tekjuliður aðalstjórnar félagsins, við erum í miklum framkvæmdum ásamt bænum á svæðinu okkar og ekkert lát verður á framkvæmdum næstu árin ef heldur sem horfir.

Hvet ég alla þá sem ekki hafa fengið greiðsluseðil í heimabankann sinn og vilja taka þátt í þeim verkefnum sem félagið er að vinna að að setja sig í samband við reimar@thorsport.is eða linda@thorsport.is, nú eða nota símann s.461-2080, árgjaldið er kr 5.000 .

Miklar þakkir til ykkar sem þegar hafa greitt en aftur að ykkur hinum greiðsluseðillinn bíður ógreiddur efir ykkur.

bkv. Nói Björnsson, formaður Þórs