Smári með U16 til Færeyja

Lúðvík Gunnarsson, landsliðsþjáfari U16 karla, hefur valið hóp sem tekur þátt í UEFA Development Tournament í Færeyjum.

Ísland mætir þar Færeyjum, Eistlandi og Bosníu og Hersegóvínu, en mótið fer fram dagana 27. febrúar - 6. mars.

Í hópnum er Þórsarinn Smári Signar Viðarsson (f. 2010) en Smári hefur leikið þrjá landsleiki fyrir U16.

Smelltu hér til að sjá hópinn í heild sinni.

Við óskum Smára til hamingju með valið og góðs gengis í verkefninu.