Þér er boðið í rjómavöfflur og rjúkandi súkkulaði í Hamri

Þér er boðið í rjómavöfflur og rjúkandi súkkulaði í Hamri

Á morgun, föstudaginn 16. desember bjóða Grobbarar, félagsskapur eldri Þórsara, upp á rjómavöfflur með tilheyrandi í Hamri.

Gestum og gangandi er boðið að kíkja við í Hamri og þiggja vöfflur í boði Grobbara. Vöfflujárnið verður hitað að morgni föstudagsins 16. desember kl. 9-11 og aftur kl. 16-18.

Verið velkomin í Hamar og eigum góða stund saman og njótum aðdraganda jólanna.

Grobbarar og Íþróttafélagið Þór