Þór/KA fær bandarískan markvörð

Melissa Anne Lowder, nýjasti leikmaðurinn í herbúðum Þórs/KA.
Melissa Anne Lowder, nýjasti leikmaðurinn í herbúðum Þórs/KA.

Melissa Anne Lowder hefur skrifað undir samning við Þór/KA um að leika með liðinu út komandi tímabil.

Melissa Anne Lowder er fædd 1997, spilaði fótbolta með Santa Clara Broncos á háskólaárunum og á að baki 63 leiki þar á árunum 2015-2018. Hún hefur frá þeim tíma verið á mála hjá Utah Royals, Chicago Red Stars og San Diego Waves.

Melissa kveðst hlakka til að ganga til liðs við Þór/KA. „Ég er ótrúlega spennt fyrir tækifærinu til að spila fyrir Þór/KA og að þroska þekkingu mína á leiknum. Ég hlakka mjög til að upplifa tengslin við stuðningsfólkið og það sem þessi klúbbur stendur fyrir. Ég vonast til að koma með góða orku og árangur inn í félagið!“ segir Melissa Anne Lowder, nýjasti liðsmaður okkar í Þór/KA.