Tilkynning - Nýr þjálfari meistaraflokks karla

Sigurður Heiðar Höskuldsson. Mynd: Morgunblaðið
Sigurður Heiðar Höskuldsson. Mynd: Morgunblaðið

Knattspyrnudeild Þórs hefur gengið frá þriggja ára samningi við Sigurð Heiðar Höskuldsson um þjálfun meistaraflokks karla.

Sigurður Heiðar er 38 ára gamall og starfaði síðast hjá Val sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks en var þar áður aðalþjálfari Leiknis R. þar sem hann náði eftirtektarverðum árangri.

Siggi Höskulds er íþróttafræðingur að mennt auk þess að vera að ljúka við UEFA PRO sem er æðsta þjálfaragráða hér á landi.

„Siggi var efstur á lista stjórnar frá upphafi og sá eini sem við fórum í viðræður við. Erum við því virkilega ánægðir með ráðninguna, hlökkum til samstarfsins og bjóðum hann velkominn í Þorpið,“ segir Sveinn Elías, formaður knattspyrnudeildar.