Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
Strákarnir okkar í handboltanum hafa lokið keppni á Íslandsmótinu þetta tímabilið eftir jafntefli gegn KA í lokaumferð Olís-deildarinnar í Höllinni í gærkvöldi.
Eftir æsispennandi leik skildu liðin jöfn 31-31 sem þýðir að Þór hafnar í 9.sæti deildarinnar. Það þýðir jafnframt að strákarnir eru komnir í snemmbúið sumarfrí en verða áfram meðal þeirra bestu á næstu leiktíð.
Efstu 8 lið deildarinnar fara í úrslitakeppni. Neðsta lið deildarinnar, ÍR, fellur niður í Grill 66 deildina og Stjarnan, sem hafnaði í 11.sæti fer umspil um að bjarga sæti sínu.
Liðin í 9. og 10.sæti (Selfoss) hafa því lokið keppni.
Okkar menn eygðu von um sæti í úrslitakeppni fyrir lokaumferðina en til þess að af því yrði hefði Þór þurft að vinna KA og treysta á að HK myndi á sama tíma tapa gegn Haukum.
HK-ingar unnu öruggan sigur á Haukum og tryggðu sér þar með í úrslitakeppnina.