Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
Úrslitaleikur Kjarnafæðimótsins í fótbolta fer fram í Boganum í kvöld klukkan 18:00 en um er að ræða síðasta leik okkar manna á undirbúningstímabilinu.
Knattspyrnudómarafélag Norðurlands hefur veg og vanda af mótinu líkt og undanfarin ár og munu selja inn á leikinn en aðgangseyrir er 1000 kr. og rennur allur ágóði til Kvennaathvarfsins á Akureyri.
Þórsarar eru ríkjandi meistarar eftir sigur á KA í úrslitaleik í fyrra. Sömu lið mætast í úrslitum í ár og eru bæði lið í lokaundirbúningi sínum fyrir Bestu deildina sem senn fer að hefjast.
Hægt verður að kaupa hamborgara og drykki í Hamri frá klukkan 17:00 og eru Þórsarar hvattir til að mæta snemma þar sem búist er við margmenni á leikinn.
Þeir sem eiga ekki heimangengt í Bogann geta fylgst með leiknum í beinni útsendingu. Smelltu hér til að sjá beina útsendingu frá leiknum