Valdimar Daði í Þór

Velkominn í Þorpið!
Velkominn í Þorpið!

Sóknarmaðurinn Valdimar Daði Sævarsson er genginn í raðir Þórs en hann skrifaði undir eins árs samning við félagið á dögunum.

Valdimar Daði er tvítugur og er uppalinn í KR, hann hefur spilað 42 leiki í meistaraflokki fyrir KR og KV og skorað 6 mörk. Hann hefur einnig spilað 7 leiki fyrir unglingalandslið Íslands. Valdimar Daði er fljótur, leikinn og fjölhæfur leikmaður sem getur spilað allar sóknarstöður á vellinum.

Valdimar Daði er ekki alls ókunnur Þorpinu því Sævar faðir hans, býr á Akureyri og því hefur Valdimar Daði æft með yngri flokkum Þórs í gegnum tíðina þegar hann hefur verið hér fyrir norðan.

Við erum virkilega stolt af því að Valdimar Daði hafi ákveðið að ganga til liðs við okkur og bjóðum hann velkominn í Þorpið!