Belgískur framherji til liðs við Þór

Lori Devos í leik með háskólaliði Colorado State í Bandaríkjunum.
Lori Devos í leik með háskólaliði Colorado State í Bandaríkjunum.

Körfuknattleiksdeild Þórs hefur samið við Lore Devos um að leika með liðinu í Subway-deildinni á komandi tímabili.

Lore Devos 24ra ára framherji, 184 sentímetrar að hæð og gengur til liðs við Þór frá Castors Braine í Belgíu. Lore á einnig að baki fjögurra ára háskólakörfuboltaferil með Colorado State þar sem hún gerði 13 stig og tók sjö fráköst að meðaltali á síðasta tímabilinu sínu í Bandaríkjunum. Eftir háskóla spilaði Lore með BCF Elfic Fribourg Basket í Svissnesku deildinni þar sem hún skilaði tíu stigum og fimm fráköstum í leik og tók einnig þátt í Eurocup leikjum liðsins með átta stig og sex fráköst að meðaltali og vann hún bæði deildarmeistara- og bikarmeistaratitil í Sviss. Lore hélt þá aftur til heimalandslins og var með sjö stig og fjögur fráköst að meðaltali fyrir Castors Braine ásamt því að leika með liðinu í Eurocup.

Daníel Andri Halldórsson, þjálfari kvennaliðs Þórs, er ánægður með að fá Lore Devos til liðs við Þór. „Lore kemur til með að styrkja okkur á flestum vígstöðvum. Hún er hörkudugleg varnarlega og getur dekkað leikmenn af nánast öllum stærðum og gerðum. Sóknarlega er hún með risastórt vopnabúr og eru ákvörðunartaka og leikskilningur hennar framúrskarandi. Við erum mjög spennt að fá Lore og vonum að hún komi inn með mikinn kraft í þetta fyrsta tímabil stelpnanna í efstu deild,“ segir Daníel Andri.

Það verður spennandi að fylgjast með stelpunum okkar í Subway-deildinni á komandi tímabili. Nú þegar hafa lykilleikmenn úr okkar röðum skrifað undir nýja samninga og fleiri undirskriftir væntanlegar. Fram kom fyrr í vikunni að Maddie Sutton verði áfram með liðinu, áður hafði Hulda Ósk Bergsteinsdóttir komið til liðs við Þór frá KR og hópurinn því að segja má fullmótaður fyrir átökin í efstu deild.