Maddie Sutton framlengir hjá Þór

Maddie Sutton í leik gegn Stjörnunni. Myndir: Páll Jóhannesson
Maddie Sutton í leik gegn Stjörnunni. Myndir: Páll Jóhannesson

Körfuknattleiksdeild Þórs hefur samið við Maddie Sutton um að leika með liðinu í Subway-deildinni á komandi tímabili og verður þetta annað tímabil hennar með liðinu.

Maddie var algjör lykilleikmaður í Þórsliðinu sem endaði í 2. sæti 1. deildar í vor og vann sér sæti í efstu deild og því mikill fengur fyrir liðið að endurnýja samning við hana. Hún er 25 ára framherji, 183 sentímetrar að hæð. Hún gekk fyrst í raðir Þórs í júní 2022 eftir að hafa spilað eitt tímabil með Tindastóli.

Maddie spilaði 33 leiki með Þórsliðinu í vetur, skoraði 19,8 stig að meðaltali, tók 16,6 fráköst, gaf 4,9 stoðsendingar og var með 31,4 framlagsstig að meðaltali í leik. Í fráköstum og framlagspunktum var hún í 2. sæti yfir deildina, 3. sæti yfir fjölda stoðsendinga og 7. sæti í stigaskori.

Daníel Andri Halldórsson, þjálfari kvennaliðs Þórs, er ánægður með að halda Maddie innan liðsins. „Hún er frábær í hóp og við erum heppin að fá hana aftur. Hún verður klárlega mikilvægt púsl í liðinu fyrir átökin í efstu deild á komandi tímabili,“ segir Daníel Andri.