Ricardo González og Lidia Mirchandani ráðin til Þórs

Körfuknattleiksdeild Þórs hefur gengið frá ráðningu tveggja reyndra og fjölþjóðlegra þjálfara í lykilstöður innan deildarinnar. Það eru þau Ricardo González Dávila og Lidia Mirchandani, sem taka formlega til starfa hjá félaginu í byrjun ágúst.

Ricardo mun taka við sem aðalþjálfari meistaraflokks kvenna og gegna jafnframt hlutverki aðstoðarþjálfara hjá meistaraflokki karla. Lidia verður í þjálfarateymi meistarflokkanna ásamt því að leiða þjálfun og þróun yngri flokka sem þjálfari í barna- og unglingastarfi.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þau starfa á Íslandi. Ricardo þjálfaði kvennalið Skallagríms tímabilið 2017–2018 og Lidia lék þá jafnframt með liðinu sem leikstjórnandi. Í kjölfarið hóf hún þjálfunarferil hér á landi og starfaði um árabil hjá körfuknattleiksdeild Keflavíkur við þjálfun stúlkna í yngri flokkum. Hún stýrði einnig liði Keflavíkur til Íslandsmeistaratitils í ungmennaflokki kvenna árið 2023.

Bæði Ricardo og Lidia hafa yfirgripsmikla reynslu af þjálfun bæði innan Evrópu og víðar, og hafa unnið með landsliðum og félagsliðum á Spáni, í Asíu, Suður-Ameríku og á Norðurlöndum. Þekking þeirra á íslensku körfuboltaumhverfi og áhersla á faglega uppbyggingu og langtímaþróun leikmanna gerir þau afar vel í stakk búin til að leiða áframhaldandi þróun körfuknattleiks hjá Þór Akureyri.

Ráðningin, sem er til þriggja ára, er með það að markmiði að skapa festu og stöðugleika í starfi öllu starfi deildarinnar og byggja upp metnaðarfulla afreksstefnu til framtíðar.

Eiður Arnar Pálmason

Formaður KKD Þórs