Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
Knattspyrnudeild Þórs heldur um helgina 85. Goðamótið, en mótin hafa verið haldin árlega frá því að Boginn var opnaður snemma árs 2003, alla tíð undir merkjum Goða í samstarfi við Norðlenska.
Á mótinu núna um helgina eru það stúlkur í 6.flokki sem etja kappi. 10 félög mæta á mótið og er keppt frá því klukkan 16:00 á föstudegi og til hádegis á sunnudag og eru keppendur ríflega 200 talsins.
Leikjadagskrár, riðla og deildir, úrslit leikja má svo finna í mótskerfinu hér: Goðamót 6.flokkur kvenna.
Í mótakerfinu er hægt að skoða leikjadagskrár og úrslit eftir félögum, liðum, riðlum og deildum.