Útsendingar og streymi frá leikjum

Þór TV er með beint streymi, stundum með lýsanda, stundum ekki, frá heimaleikjum félagsins í körfubolta karla og kvenna. Mögulega einnig frá heimaleikjum í Lengjubikarnum í knattspyrnu. 

Hér á forsíðunni á thorsport.is (neðar) má sjá hvaða leikur er næst á dagskrá og fara áfram þaðan inn á útsendingavefinn okkar á Livey.com til að fara inn á næsta viðborð og/eða sjá hvað er á döfinni. 

Leikir handknattleiksliðs Þórs í Grill 66 deildinni eru sýndir á handboltarásum Sjónvarps Símans.

Leikir Þórs/KA í Bestu deildinni í knattspyrnu eru sýndir beint á Stöð 2 sport eða á hliðarrásum og stundum á vef Vísis.

Leikir karlaliðs Þórs í Lengjudeildinni í knattspyrnu hafa verið sendir út á YouTube-rás Lengjudeildarinnar.