11. flokkur í undanúrslitum bikarkeppni

Þórsarar taka á móti Stjörnunni B í undanúrslitum í bikarkeppni 11. flokks. Leikurinn fer fram sunnudaginn 11. desember kl. 15:00 Glerárskóla. 

Með sigri fara strákarnir í úrslit í bikarnum og mæta þar ÍR eða Stjörnunni A en viðureign fer fram 12. desember í TM-Hellinum. 

Við hvetjum alla til að kíkja í Glerárskóla og styðja strákana til sigurs!