2.flokkur leikur í Litháen í dag

Strákarnir í 2.flokki halda áfram keppni í Evrópukeppni unglingaliða í dag þegar þeir mæta litháísku meisturunum í FK Zalgiris ytra.

Um er að ræða seinni leik liðanna í einvíginu en Zalgiris vann fyrri leikinn sem fram fór á VÍS vellinum 3-4.

Okkar drengir þurfa því að ná í sigur í dag til að komast áfram úr einvíginu.

25 manna hópur hélt utan á mánudag; 20 leikmenn og 5 manna starfslið.

Strákarnir æfðu á leikvangnum í gær og eru allir klárir í slaginn fyrir leikinn í dag sem hefst klukkan 19:00 á staðartíma en það er klukkan 16:00 á íslenskum tíma. 

Því miður verður leikurinn ekki sýndur beint en reglur UEFA heimila ekki að leikir í Youth League séu sendir út í beinni útsendingu þegar verið er að spila í Meistaradeild Evrópu á sama tíma.

Við bendum þó á beina textalýsingu á vef UEFA með því að smella hér.