4. flokkur á faraldsfæti

Síðastliðinn laugardag renndi 4. flokkur í borgina til að spila einn leik við Fram. Lagt var af stað í morgunsárið og gekk ferðalagið suður vel. Leikurinn hjá strákunum byrjaði vel og var staðan 9-9 eftir u.þ.b. 20 mín. en þá byrjaði brekkan. Framúrkeyrsla Framara varð að 5 marka mun í hálfleik. Seinni hálfleikur var alls ekki auðveldari en okkar strákar gáfust aldrei upp og var hrein barátta í 50 mín.

Lokatölur leiksins urðu því 39-27 en því skal haldið til haga að Fram eru í 2. sæti í efstu deild og hefur aðeins einu liði tekist að sigra þá þetta árið. Þjálfararnir Viktor og Arnór eru stoltir af sínum mönnum og spenntir fyrir næstu helgi er 4. flokkur mætir aftur í borgina til að krækja sér í 4 stig til að flytja með sér norður.