6 Þórsarar skrifa undir sinn fyrsta samning

Sexmenningarnir ásamt Sveini Elíasi Jónssyni, formanni knattspyrnudeildar við undirskriftina.
Sexmenningarnir ásamt Sveini Elíasi Jónssyni, formanni knattspyrnudeildar við undirskriftina.

Sex ungir Þórsarar hafa skrifað undir sinn fyrsta leikmannasamning við knattspyrnudeild Þórs.

Leikmennirnir sem um ræðir eru Ásbjörn Líndal Arnarsson, Einar Freyr Halldórsson, Haukur Leo Þórðarson, Kjartan Ingi Friðriksson, Sigurður Jökull Ingvason og Sverrir Páll Ingason.

Allir gera þeir samning til ársins 2026.

Strákarnir voru hluti af 3.flokki Þórs í sumar en komu einnig við sögu með 2.flokki og hafa allir verið viðloðandi yngri landslið Íslands í sínum aldursflokki en Haukur Leo er fæddur árið 2007 á meðan Ásbjörn Líndal, Einar Freyr, Kjartan Ingi, Sigurður Jökull og Sverrir Páll eru fæddir 2008.

Við óskum drengjunum til hamingju með sinn fyrsta samning og hlökkum til að fylgjast með framþróun þeirra á næstu árum.