Addi Mall framlengir við Bergischer - Þrír Þórsarar að þjálfa í Bundesligunni

Okkar maður, Arnór Þór Gunnarsson, hefur framlengt samning sinn sem þjálfari hjá þýska úrvalsdeildarliðinu Bergischer HC til ársins 2028.

Arnór mun stýra liðinu með Markus Pütz næstu tvö tímabilin.

Eins og allir vita er Arnór Þór uppalinn hjá Þór og lék með Bergischer í ellefu ár sem leikmaður áður en hann tók við þjálfarastarfinu í liðinu árið 2024. Við óskum okkar manni innilega til hamingju með samninginn með von um áframhaldandi árangur í þjálfarastarfinu.

Arnór er ekki eini Þórsarinn sem stýrir liði í þýsku úrvalsdeildinni um þessar mundir því hinn þrautreyndi Rúnar Sigtryggsson er mættur aftur á hliðarlínuna í deildinni þar sem hann tók við stjórnartaumunum hjá Wetzlar undir lok síðasta árs.

Þar með er það ekki upptalið því þriðji Þórsarinn, Heiðmar Felixsson, er einnig við störf í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta en hann er aðstoðarþjálfari hjá Hannover Burgdorf

Lykilmaðurinn“ Heiðmar áfram þrátt fyrir þjálfaraskipti

Til vinstri: Heiðmar Felixsson hefur sig til lofts í Glerárskóla fyrir nokkrum árum.
Til hægri: Heiðmar er í dag aðstoðarþjálfari Hannover-Burgdorf

Handball-Bundesliga - Wetzlar findet schnell neuen Trainer - Sigtryggsson  kommt - Sport - SZ.de

Til vinstri: Rúnar Sigtryggsson kominn í dauðafæri í Glerárskóla fyrir nokkrum árum.
Til hægri: Rúnar á hliðarlínunni í þýsku úrvalsdeildinni.

Væri gaman að koma heim einn daginn og þjálfa“ | Þór - TaeKwonDoArnór Þór Gunnarsson - Wikipedia

Til vinstri: Arnór Þór í leik með meistaraflokki Þórs gegn KA fyrir nokkrum árum.
Til hægri: Arnór er í dag þjálfari þýska úrvalsdeildarliðsins Bergischer

Heiðurinn af gömlu myndunum í þessari frétt á að sjálfsögðu Skapti Hallgrímsson.