Æfingar fyrir krakka og unglinga hjá Píludeild Þórs

Æfingar fyrir krakka og unglinga hefjast formlega mánudaginn 25.sept hjá Píludeild Þórs og verða tvisvar í viku, á mánudögum og miðvikudögum frá kl 16:45 - 18:00. Æfingar eru í boði fyrir 10-16 ára krakka og unglinga. 

Í kvöld (miðvikudag 20.sept) verður opið hús hjá okkur frá kl 16:30 - 18:00 þar sem krakkar og unglingar ásamt forráðamönnum gefst tækifæri á að kíkja á aðstöðuna og ræða við stjórnarmeðlimi og þjálfara. 

Skráning verður í gegnum Sportabler og verður æfingagjald 10.000.- til áramóta. Við hvert greitt æfingagjald fylgir pílusett. Skráningarform verður tilbúið á næstu dögum og kemur auglýsing þess efnis hér inn.

Hægt er að fylgjast með frekari upplýsingum á Facebook síðu Píludeildar Þórs eða í síma 844-3813 (Davíð) / 696-5725 (Viðar).