Frá afhendingu styrkjanna. Sjá nöfn inni í fréttinni. Mynd: Ármann Hinrik.
- - -
Afrakstur kvennakvölds Þórs og KA sem haldið var í maí var afhentur fyrir leik Þórs/KA og ÍBV í Bestu deild kvenna í knattspyrnu sem fram fór í gær. Fulltrúar kvennakvöldsnefndarinnar afhentu þá fulltrúum þeirra fjögurra deilda og kvennaliða sem stunda boltaíþróttir hjá félögunum, það eru knattspyrnulið Þórs/KA, handboltalið KA/Þórs, körfuknattleiksdeild Þórs og blakdeild KA.
Í tilkynningu frá kvennakvöldsnefndinni segir:
Árlegt Kvennakvöldi Þórs og KA 2026 var haldið með frábærri þátttöku og einstökum stuðningi frá samfélaginu. Við erum stolt af því að tilkynna að samtals söfnuðust 5,6 milljónir króna og hver deild fær því 1.400.000 krónur.
Markmið úthlutunar: Að efla kvennastarf, styrkja aðstöðu, skapa tækifæri og tryggja að konur og stúlkur í íþróttum hafi aðgang að öflugum og faglegum umhverfum.
Nefndin vill koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sjálfboðaliða sem komu að undirbúningi og framkvæmd kvöldsins. Einnig færum við okkar bestu þakkir til allra styrktaraðila kvöldsins.
Í kvennakvöldsnefndinni eru Linda Guðmundsdóttir, Eva Björk Halldórsdóttir og María Kristín Davíðsdóttir.
Frá afhendingu styrksins. Frá vinstri: Eva Björk Halldórsdóttir úr kvennakvöldsnefndinni, Kári Þorleifsson frá körfuknattleiksdeild Þórs, Lydía Gunnþórsdóttir og Bergrós Guðmundsdóttir frá KA/Þór, Auður Pétursdóttir og Kara Árnadóttir frá blakdeild KA, Dóra Sif Sigtryggsdóttir frá Þór/KA og Linda Guðmundsdóttir frá kvennakvöldsnefndinni.