Áfram fær Hamar yfirhalningu

Duglegir strákar!
Duglegir strákar!

Starfsmenn í Þórs eru nú í óða önn að taka efstu hæð Hamars í gegn. Búið er að mála öll loft og veggi, en einnig er verið að leggja ný gólfefni þessa dagana.

Verkið er langt á veg komið en nóg er framundan og á meðal annars að endurnýja gólfefni á íbúðinni sem er staðsett í austur helming efri hæðar Hamars og skipta þar um eldhúsinnréttingu. Í fyrra var farið í að slípa og laga gólfið á miðhæðinni ásamt því að skipta um innréttingu í austursalnum (fundarsalnum). Allt er þetta liður í að gera félagsheimilið okkar sem glæsilegast.