Ágætur rekstur rafíþróttadeildarinnar

Þrátt fyrir að rekstrartekjur hafi dregist saman frá fyrra ári kom rekstur rafíþróttadeildar Þórs vel út á liðnu ári. 

Þetta kom fram á aðalfundi deildarinnar sem haldinn var núna í vikunni. Fram fóru hefðbundin aðalfundarstörf, skýrsla formanns og reikningar, auk kosninga. Bjarni Sigurðsson verður áfram formaður deildarinnar, en ásamt honum í stjórninni verða þeir Andri Þór Bjarnason og Sævar Eðvarðsson, sem báðir halda áfram stjórnarsetu frá fyrra ári. Baldur Breki Heiðarsson og Viktor Már Árnason gáfu ekki kost á sér til áframhaldandi setu í stjórninni. Stjórnarmeðlimum fækkar úr fimm í þrjá.