Akureyri Open í pílukasti um komandi helgi - aðstaðan er sprungin

Píludeildin stendur fyrir stórmóti um helgina - og mótið er stútfullt! Boðið er upp á vegleg verðlaun.
 
Akureyri Open fer fram um komandi helgi í aðstöðu píludeildar Þórs í íþróttahúsinu við Laugargötu. Keppt verður á föstudagskvöld og allan laugardaginn. Keppt verður í tvímenningi á föstudagskvöldið og svo einmenningi daginn eftir - í 501. Fullskráð er í mótið og biðlistar, en eitthvað hefur verið um afskráningar á mótin. Ef um forföll verður að ræða eru viðkomandi beðin um að láta píludeild Þórs vita sem allra fyrst, svo hægt sé að gera ráðstafanir. Vinsamlegast sendið póst á pila@thorsport.is ef þið þurfið að tilkynna forföll.

Föstudagur 17. febrúar - 501 tvímenningur

Tvímenningur hefst kl 19:00 á föstudagskvöldið og húsið verður opnað kl 18:00. Það eru 32 lið skráð til leiks. Spilað verður í riðlum og svo útslætti. Þau lið sem komast ekki upp úr riðli geta skráð sig í hinn margfræga forsetabikar. Verðandi keppendur geta skoðað skráningu í mótið hér, til að tryggja að ekkert hafi misfarist í skráningunni. 

Laugardagur 18. febrúar - 501 einmenningur

Einmenningur hefst svo kl 10:30 á laugardag og húsið verður opnað kl. 9. Það eru 72 keppendur skráðir til leiks. Sama fyrirkomulag verður í einmenningi, spilað verður í riðlum og útslætti. Spilað verður í níu riðlum og verða átta keppendur í hverjum riðli. Efstu 5 keppendur í hverjum riðli komast áfram í útslátt. Þeim sem komast ekki áfram gefst kostur á að skrá sig í aukakeppni um forsetabikarinn. Riðlar A, B, C og D hefja leik kl 10:30 og riðlar E, F, G og H kl. 13. Útsláttur byrjar svo í beinu framhaldi þegar keppni í riðlum er lokið. Verðandi keppendur geta skoðað skráningu í mótið hér, til að tryggja að ekkert hafi misfarist í skráningunni. 

Vegleg verðlaun

Píludeildin er í gjafastuði og býður upp á frábær verðlaun í einmenningnum. Þar verður að sjálfsögðu Akureyri Open bikarinn í boði, ásamt Scolia Home búnaði, bæði í aðalkeppninni og í keppninni um forsetabikarinn. Til mikils að vinna!
 
Þátttökugjald í tvímenning er 1.000 kr. á mann og í einmenning 4.000 kr. á mann. Ganga verður frá greiðslu fyrir kl 16:00 á morgun, fimmtudag! Ef greiðsla hefur ekki borist fellur skráning niður. Reikn. 0566-26-763, kt. 410311-0460.

Aðstaðan er sprungin

Það eru ekki mörg ár síðan pílufólk í Þór kastaði pílum á miðhæð stúkunnar við Þórsvöllinn, við þröngan kost, þar sem rafíþróttadeildin hefur aðstöðu núna. Þegar kom að því að halda Akureyri Open fékk deildin að yfirtaka Hamar og fór mikil vinna í að flytja spjöld, skilrúm og fleira úr stúkunni yfir í Hamar, setja allt saman upp og taka svo niður aftur að móti loknu og flytja og setja aftur upp í stúkunni. Nú er öldin önnur og píludeildin hefur byggt upp frábæra aðstöðu fyrir pílukastið í Íþróttahúsinu við Laugargötu. En sú aðstaða er samt í raun sprungin utan af deildinni vegna þess hve hratt hún hefur vaxið og þeim fjölgað sem kasta pílum.
 
Heimasíðan heyrði í Davíð Erni Oddssyni, formanni píludeildarinnar, og forvitnaðist um aðstöðuna og vöxtinn í pílukastinu. Davíð Örn segir sannarlega vanta meira pláss. „Við erum búin að sprengja aðstöðuna okkar líkt og hún er í dag. Við erum með 16 spjöld sem rúma ekki þennan fjölda sem verður um helgina. Þess vegna erum við að dreifa keppninni á laugardeginum til að skapa nóg pláss fyrir keppni og upphitunarspjöld. Lítil aðstaða er fyrir fólk til að setjast niður og spjalla. Við þyrftum að hafa setustofu þar sem menn geta sest niður og spjallað saman við borð,“ sagði Davíð Örn í spjalli við heimasíðuritara. Hann bendir til dæmis á að þegar deildin heldur skemmtimót séu 50-70 manns sem mæti og taki þátt. Aðstaðan rúmi varla þann fjölda.
 
Hér er kannski komin enn ein ástæða til að flýta uppbyggingu íþróttahúss á Þórssvæðinu.