Allt á suðupunkti á toppi Ljósleiðaradeildarinnar

Þórsarar unnu sína viðureign í umferð gærkvöldsins og eru tveimur stigum frá toppliðinu.

Þórsarar mættu liði Viðstöðu og unnu þá viðureign örugglega, 16-5. Topplið deildarinnar, Atlantic, tapaði sinni viðureign. Þórsarar stigu því skrefi nær toppnum með sigrinum í gær, en fyrir umferðina voru þeir í þriðja sæti með 18 stig, jafnir Dusty að stigum og bæði lið fjórum stigum á eftir Atlantic. Þór og Dusty unnu sínar viðureignir í gærkvöld, en Atlantic tapaði, þannig að núna eru stigin 22, 20, 20. 

Að því er fram kemur á Facebook-síðu Rafíþróttasamtaka Íslands er því fram undan ofurlaugardagur! Deildin sjálf er einnig með Facebook-síðu.