Almenningstímar hjá Píludeildinni í janúar

Aðstaða Píludeildar Þórs í íþróttahúsinu við Laugargötu er opin í janúar fyrir öll sem áhuga hafa á að koma og prófa og kynnast pílukasti.
 
Opið er hjá Píludeildinni öll mánudags- og miðvikudagskvöld kl. 19-22 og núna í janúar hvetur deildin fólk sérstaklega til að koma og prófa, með því að bjóða upp á almenna opnun fyrir öll sem hafa áhuga á að koma og prófa pílukast.