Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
Andlát.
Páll Halldór Jónsson frá Höfða í Glerárþorpi, fyrrverandi knattspyrnumaður lést þann 23. mars s.l á 87 aldursári.
Páll Jónsson var gegnheill Þórsari með stórum staf allt sitt líf og helgaði félaginu krafta sína, fyrst sem leikmaður í knattspyrnu með ÍBA og Þór en síðar sem þjálfari yngri flokka félagsins og stjórnarmaður í ráðum og aðalstjórn.
Það eru fáir heimaleikir knattspyrnuliðs Þórs sem Páll hefur ekki verið í stúkunni og hvatt sína menn með ráðum og dáð en hann var einn af dyggustu stuðningsmönnum félagsins í áratugi. Þórsvöllur var heimavöllur Palla og oft leit hann við í Hamar í kaffisopa og spjall, fá fréttir og athuga með sína menn. Páll var einstaklega hlýr og þægilegur í öllu viðmóti, spurði frétta af liðinu, næsta leik og það var alltaf gaman þegar Palli Jóns leit í hús.
Íþróttafélagið Þór þakkar Páli Halldóri Jónssyni árin öll og sendir eftirlifandi eiginkonu hans Kristínu Sveinsdóttur og börnum þeirra sem og öðrum ástvinum innilegar samúðarkveðjur.
Páll H Jónsson verður jarðsunginn frá Glerárkirkju þriðjudaginn 31. mars kl 13.00