Annar sigur okkar manna í röð

Okkar menn fagna öðru marka Alexanders Más í dag. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Okkar menn fagna öðru marka Alexanders Más í dag. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Þórsarar unnu í kvöld sinn annan sigur í röð í Lengjudeild karla í fótbolta þegar þeir unnu KV 3-1 á Saltpay-vellinum. Mörk okkar manna skoruðu þeir Alexander Már Þorláksson (2) og Harley Willard. Alexander kemur heldur betur af krafti inn í Þórsliðið og hefur nú gert þrjú mörk í fyrstu tveimur leikjum sínum fyrir félagið!

Að vanda eru fotbolti.net og Akureyri.net með umfjallanir um leikinn og má nálgast þær með því að smella á nöfn miðlanna hér á undan.

 

DFK!