Fréttir & Greinar

Þórsarar sækja Njarðvíkinga heim í dag

Það er leikdagur hjá okkar mönnum í Lengjudeildinni. Þórsarar halda til Njarðvíkur og mæta þeim grænu kl. 16 í dag.

Ísfold Marý og Jakobína í lokahóp fyrir EM U19

Fjórar frá Þór/KA eru í leikmannahópum U19 og U16 landsliðanna sem eru á leið í verkefni í júlí.  Ísfold Marý Sigtryggsdóttir og Jakobína Hjörvarsdóttir valdar í lokahóp U19. Karlotta Björk Andradóttir og Kolfinna Eik Elínardóttir fara með U16 á NM.

Þór/KA: Keppnistreyjur og stuðningsmannabolur til sölu

Núna er hægt að panta nýjan stuðningsmannabol Þórs/KA og keppnistreyjurnar, bæði svörtu og hvítu. Hér eru helstu upplýsingar:

Nikola Kristinn framlengir

Miðjumaðurinn Nikola Kristinn Stojanovic hefur skrifað undir nýjan samning við knattspyrnudeild Þórs.

Stórsigur á Stólunum

Þór/KA hífði sig upp í 4. sæti Bestu deildarinnar með fimm markaa sigri á Tindastóli á Þórsvellinum í gærkvöld. Sandra María Jessen fór handleggsbrotin af velli í lok fyrri hálfleiks. Liðsfélagar hennar svöruðu með fimm mörkum á síðasta hálftíma leiksins.

Gunnhildur Yrsa og fótbolti fyrir alla í Boganum

„Fótbolti fyrir alla“ verður í Boganum á morgun, fimmtudaginn 22. júní, kl. 12-13. Opinn tími.

Þór/KA fær Tindastól í heimsókn

Þór/KA mætir liði Tindastóls á Þórsvellinum í kvöld kl. 20. Upphitun verður á pallinum við Hamar frá kl. 19.

Bandarískur framherji í raðir Þórs

Körfuknattleiksdeild Þórs hefur samið við bandarískan frmaherja, Harrison Butler.

Skallamörk Alexanders skildu á milli

Þórsarar unnu fjórða heimaleik sinn í röð í Lengjudeildinni þegar þeir fengu Selfyssinga í heimsókn. Annan heimaleikinn í röð í deildinni skoruðu Þórsarar þegar aðeins um hálf mínúta var liðin af seinni hálfleiknum. Sami maður, svipuð sending. Síðast voru það 33 sekúndur, nú voru það 26 sekúndur.

Afrakstur kvennakvöldsins afhentur

Kvennakvöldsnefndin hefur afhent fulltrúum félaganna sem að kvöldinu stóðu afraksturinn. Það var gert í dýrindis veðri í Lystigarðinum í dag.