Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
Lokahóf meistaraflokks karla fór fram í Hamri í gær þar sem leikmenn og aðstandendur liðsins hittust og gerðu upp liðið tímabil.
Venju samkvæmt voru veitt verðlaun fyrir þá sem þóttu skara fram úr auk þess sem leikmenn völdu leikmann leikmannanna.
Bestur - Aron Birkir Stefánsson
Besti ungi leikmaðurinn - Einar Freyr Halldórsson
Leikmaður leikmannnanna - Aron Birkir Stefánsson

Aron Birkir Stefánsson er leikmaður ársins 2026 hjá Þór. Aron Birkir var fyrirliði Þórs sem hafnaði í 10.sæti Bestu deildarinnar og var sá markvörður deildarinnar sem hélt marki sínu oftast hreinu, ásamt Aroni Snæ Friðrikssyni sem varði mark Íslandsmeistara Víkings, eða alls 6 sinnum.
Aron Birkir var einnig markahæsti markvörður deildarinnar í ár en hann skoraði stórkostlegt mark í 3-3 jafntefli gegn KR á VÍS vellinum. Markið skoraði Aron úr aukaspyrnu sem var af miðjum eigin vallarhelmingi og var markið valið það flottasta í öllum uppgjörsþáttum Bestu deildarinnar í haust.
Aron Birkir var fyrirliði Þórsliðsins líkt og undanfarin ár en þessi 27 ára gamli markvörður hefur leikið 288 leiki fyrir meistaraflokk Þórs.

Einar Freyr Halldórsson er besti ungi leikmaður Þórs 2026. Einar Freyr átti frábæra frumraun í efstu deild og lék lykilhlutverk í liði Þórs á tímabilinu.
Þessi 18 ára gamli miðjumaður lék 25 leiki í deildinni og skoraði tvö mörk auk þess að vera með fjórar stoðsendingar.
Einar hefur leikið 67 leiki fyrir meistaraflokk Þórs og skorað í þeim 6 mörk auk þess að eiga 28 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands.
Aron Birkir framlengir til 2028
Á hófinu var einnig tilkynnt um að Aron Birkir hefði undirritað nýjan tveggja ára samning við knattspyrnudeild Þórs. Var það tilkynnt með myndbandinu hér að neðan.