Árveig Lilja með landsliðinu í Counterstrike

Árveig Lilja Bjarnadóttir, landsliðskona úr röðum Þórs, keppir á Norðurlandamótinu í Counterstrike 2…
Árveig Lilja Bjarnadóttir, landsliðskona úr röðum Þórs, keppir á Norðurlandamótinu í Counterstrike 2 um helgina.

Norðurlandamót kvenna í Counterstrike 2 fer fram í Gautaborg í Svíþjóð um helgina. Árveig Lilja Bjarnadóttir frá rafíþróttadeild Þórs var valin í landsliðið og verður í sviðsljósinu um helgina.

Vonir standa til að geta sett inn beint streymi frá leikjunum, sem áhugasöm geta þá væntanlega fundið á Facebook-síðu rafíþróttadeildarinnar.

Leikir Íslands

  • Laugardagur kl. 10:30-11:45
    Ísland - Svíþjóð
  • Laugardagur kl. 14:00-15:15
    Ísland - Danmörk
  • Sunnudagur kl. 9:00-10:15
    Ísland - Finnland
  • Sunnudagur kl. 10:30-11:45
    Ísland - Noregur

Úrslitaviðureignir mótsins fara fram kl. 14-17 á sunnudag.