Ási, Einar og Sverrir með U19 til Portúgal - Fimm Þórsarar í hópnum

Þórhallur Siggeirsson, landsliðsþjálfari U19 karla, hefur valið hóp sem tekur þátt í æfingamóti í Portúgal.

Ísland mætir þar Bandaríkjunum, Portúgal og Marokkó dagana 24. mars - 1. apríl.

Í hópnum eru þrír leikmenn Þórs; þeir Ásbjörn Líndal Arnarsson, Einar Freyr Halldórsson og Sverrir Páll Ingason. Þórsararnir Egill Orri Arnarsson og Sigurður Jökull Ingvason, sem nú eru á mála hjá Midtjylland í Danmörku eru einnig í hópnum.

Smelltu hér til að sjá hópinn í heild sinni.

Við óskum okkar drengjum til hamingju með valið og góðs gengis í verkefninu.