Atli Þór semur við Þór

Atli Þór Sindrason.
Atli Þór Sindrason.

Atli Þór Sindrason hefur skrifað undir sinn fyrsta samning við knattspyrnudeild Þórs.

Atli Þór er fjölhæfur sóknarsinnaður leikmaður sem getur leikið allar stöður framarlega á vellinum. Hann er á sextánda aldursári, fæddur árið 2006 og gerir samning sem gildir út árið 2024.

Atli ólst upp á Blönduósi, skipti yfir í Þór í 4.flokki og hefur leikið með yngri flokkum félagsins síðan. Atli hefur skorað átta mörk í átján leikjum á Íslandsmóti 3.flokks í sumar og hefur einnig komið við sögu í fimm leikjum með 2.flokki.

Óskum Atla til hamingju með sinn fyrsta samning og hlökkum til að fylgjast áfram með honum vaxa og dafna.