Hæfleikamót KSÍ fyrir 2012 árgang fór fram á dögunum í Miðgarði í Garðabæ og áttum við Þórsarar þar 8 öfluga fulltrúa.
Júlía Guðlaug Kristinsdóttir, Kolfinna Kara Helgadóttir, Fanney Mjöll Arnarsdóttir, Harpa Karen Karlsdóttir, Lydia Björk Ragnarsdóttir og Tinna Margrét Axelsdóttir tóku þátt í Hæfileikamóti stúlkna.
Emil Orri Vatnsdal Sveinsson og Kristófer Áki Aðalsteinsson tóku þátt í Hæfileikamóti drengja.
Mótið er lokahnykkur Hæfileikamótunar N1 og KSÍ hvers árs þar sem leikmenn frá félögum víðs vegar um landið mæta og taka þátt.
Talið frá vinstri: Júlía Guðlaug Kristinsdóttir, Harpa Karen Karlsdóttir, Lydía Björk Ragnarsdóttir, Tinna Margrét Axelsdóttir, Kolfinna Kara Helgadóttir, Fanney Mjöll Arnarsdóttir.

Frá vinstri: Kristófer Áki Aðalsteinsson og Emil Orri Vatnsdal Sveinsson.