Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
Knattspyrnudeild Þórs og líftæknifyrirtækið Genis hafa gert með sér samstarfssamning til eins árs.
Leikmenn meistaraflokks munu þar með hafa aðgang að fæðubótarefninu Benecta™ sem Genis setti á markað árið 2016 og hefur síðan þá fest sig í sessi meðal íþróttafólks í fremstu röð.
Benecta™ inniheldur kítófásykrur ásamt vítamínum og steinefnum sem styðja við eðlileg efnaskipti, auka orku og draga úr þreytu. Benecta™ er annars vegar framleitt í hylkjum og hins vegar í freyðitöflum og eru vörurnar afrakstur tæplega tveggja áratuga rannsóknar- og þróunarvinnu á kítófásykrum.
Við bjóðum Benecta™ velkomið í stækkandi hóp samstarfsaðila meistaraflokks Þórs í fótbolta!