Handknattleiksmaðurinn Bertram Simonsen gengur í raðir Þórs frá danska félaginu Lemvig Thyborøn.
Bertram er rétthentur miðjumaður/vinstri skytta og öflugur varnarmaður fæddur árið 2004 í Herning, Danmörku og spilaði hann með yngri flokkum Herning FH og Skanderborg ásamt því að hafa spilað með yngri landsliðum Danmörku.
Bertram hefur leikið með Lemvig undanfarin tvö ár en spilaði þar áður með HC Midtjylland.
Við bjóðum Bertram hjartanlega velkominn í Þorpið!