Karfan er tóm.
- Deildir
- Fréttir & Greinar
- Fræðsla & Forvarnir
- Félagið
- Miðlar & Myndefni
- Ábending um heiðursmerki
- Þór TV
Björn Halldór Sveinsson var kjörinn Heiðursfélagi Þórs á dögunum og var tilkynnt um það á 111 ára afmæli félagsins sem haldið var hátíðlegt í Hamri laugardaginn 6.júní síðastliðinn.
Björn Halldór Sveinsson körfuboltamaður og sjálfboðaliði en umfram allt gegnheill Þórsari.
Björn Halldór Sveinsson eða bara Bjössi Sveins eins og hann er jafnan kallaður er fæddur Þórsari og á yngri árum lék hann með Þór í knattspyrnu í gegnum allt yngriflokkastarf félagsins og var liðtækur varnarmaður, harður, fylginn sér og duglegur en umfram allt einstaklega góður félagi. Á einhverjum tímapunkti á ungdómsárunum skipti Bjössi um íþrótt, og upp frá því átti körfuknattleikur hug hans allan og lék hann lengi körfuknattleik með Þór og var einn af burðarásum liðsins í áraraðir.
Þar eins og í knattspyrnunni var Bjössi gríðarlega mikilvægur hlekkur og eftirminnilegur leikmaður, sem ritaði nafn sitt með feitu letri í sögu körfuknattleiksdeildarinnar hjá Þór.
Eftir að leikmannaferlinum lauk hefur Bjössi verið einn öflugasti sjálfboðaliði, sem körfuknattleiksdeild Þórs hefur innan sinna raða í víðustu merkingu þess orðs. Um árabil var hann einn öflugasti dómari, sem deildin hefur haft aðgang að, dæmdi leiki yngri flokka, sem og leiki meistaraflokks kvenna m.a. á Íslandsmótum og æfingaleiki meistaraflokks karla.
Svo verður ekki hægt að sleppa að nefna að foreldrahlutverkið sem Bjössi hefur ræktað við stuðning barna sinna í körfuknattleiknum er aðdáunarvert og eftir er tekið og þar eins og víða í störfum hans Bjössa er fagmennskan alsráðandi og öðrum foreldrum til eftirbreytni.
Björn er einn þeirra fjölmörgu sem er “maðurinn á bakvið tjöldin”, sá sem alltaf er hægt að treysta á og kalla til ef einhver verkefni þarf að vinna. Þá er Bjössi eins og gjarnan er sagt um skátana “ávallt reiðubúinn”. Bjössi er afar traustur og sannur Þórsari og félagið væri miklu fátækara án hans. .
Björn Halldór Sveinsson er einn þeirra sem spyr aldrei hvað félagið geti gert fyrir sig, hann spyr “hvað get ég gert fyrir félagið mitt?”
Öll íþróttafélög ættu að eiga sinn eigin Bjössa Sveins og hafi félög aðgang að slíkum manni er svo sannarlega þeim borgið.
Björn lék alls átta tímabil með Þór í úrvalsdeild og leikirnir urðu alls 195 og stigin voru 1177. Þá eru ótaldir leikir hans í 1. deild sem trúlega gætu verið annað eins, ef ekki fleiri.
