Bóndadagur - snitzelveisla í Hamri (FRESTAÐ)

Föstudaginn 20. janúar, að kvöldi bóndadags, verður snitzelveisla, pub quiz og gaman í Hamri. 
 
Húsið verður opnað kl. 19 og hefst borðhald kl. 19:30. Körfuknattleiksdeildin stendur fyrir þessari samkomu og rennur allur ágóði til meistaraflokka félagsins í körfubolta. Miðaverð er 4.500 krónur og nauðsynlegt að skrá sig fyrirfram hér. Magnús Örn Friðriksson kokkur framreiðir hlaðborð með snitzeli og öllu tilheyrandi, auk þess sem drykkir verða seldir á staðnum. Sævar Ingi Rúnarsson verður veislustjóri og skemmtir gestum af sinni alkunnu snilld. Þá verður pub quiz með almennum spurningum.