Dagskrá í Hamri í dag - Grill, fótbolti og forsala á Þór-KA

Lengjubikarstvíhöfði í Boganum í dag.
Lengjubikarstvíhöfði í Boganum í dag.

Þór mætir Val í Lengjubikarnum í fótbolta í dag og fer leikurinn fram í Boganum klukkan 17:00. Um er að ræða síðasta leikinn í riðlinum og geta okkar menn tryggt sér sæti í undanúrslitum með því að leggja Val að velli.

Mánuður er í að keppni hefjist í Bestu deild karla en þessi sömu lið mætast einmitt í fyrstu umferðinni, að Hlíðarenda þann 12.apríl.

Eftir leik Þórs og Vals, eða klukkan 19:30 verður flautað til leiks hjá Þór/KA og FH í Lengjubikarnum en sömuleiðis er um að ræða lokaleik riðlakeppninnar og á hvorugt lið möguleika á að komast áfram. Stelpurnar okkar sömuleiðis að nálgast sinn lokaundirbúning fyrir Bestu deildina og þar byrjar Þór/KA á því að mæta FH í heimaleik þann 25.apríl.

Við hvetjum Þórsara til að fjölmenna í Bogann í dag og fylgjast með okkar liðum undirbúa sig fyrir spennandi fótboltasumar. Það verður grillað í Hamri fyrir leik og á sama tíma verður forsala á handboltaleik Þórs og KA sem fram fer í Höllinni á fimmtudag, að því gefnu að einhverjir miðar verði enn eftir en allt útlit er fyrir að það muni seljast upp á leikinn.