Davíð til æfinga með U17

Lúðvík Gunnarsson, nýráðinn landsliðsþjálfari U17 karla í fótbolta, hefur valið hóp sem æfir dagana 25.-27. janúar.

Æfingarnar fara fram í Miðgarði í Garðabæ.

Þórsarinn Davíð Örn Aðalsteinsson er í hópnum. Smelltu hér til að sjá hópinn í heild sinni.

Liðið undirbýr sig fyrir milliriðil í undankeppni EM 2023, en Ísland er í riðli með Svartfjallalandi, Wales og Skotlandi.

Óskum Davíð til hamingju með valið og góðs gengis á æfingunum.