Egill og Pétur með U17 til Ungverjalands

Lúðvík Gunnarsson, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið leikmannahóp til þátttöku í Telki Cup æfingamóti sem fram fer í Ungverjalandi dagana 14. – 20. ágúst næstkomandi.

Í hópnum eru Þórsararnir Egill Orri Arnarsson og Pétur Orri Arnarson. 

Egill er 15 ára gamall vinstri bakvörður og Pétur Orri 16 ára gamall miðvörður. Eru þeir því báðir í 3.flokki en hafa spilað með 2.flokki Þórs í allt sumar. Egill hefur leikið sex landsleiki fyrir yngri landslið Íslands og Pétur fimm.

Hópinn í heild má sjá með því að smella hér

Við óskum strákunum til hamingju með valið og góðs gengis í verkefninu.