Egill Orri til FC Midtjylland

Egill hefur farið upp í gegnum alla yngri flokka Þórs og er í dag á eldra ári í 3.flokki.
Egill hefur farið upp í gegnum alla yngri flokka Þórs og er í dag á eldra ári í 3.flokki.

Knattspyrnudeild Þórs og danska úrvalsdeildarliðið FC Midtjylland hafa komist að samkomulagi um að Þórsarinn Egill Orri Arnarsson hafi félagaskipti til danska félagsins í sumar.

Egill hélt upp á 16 ára afmælisdaginn sinn í gær í Danmörku þar sem hann skrifaði undir þriggja ára samning við Midtjylland eftir að Þór samþykkti kauptilboð Midtjylland á dögunum. Egill var samningsbundinn Þór út árið 2025. Egill mun ganga til liðs við danska félagið þann 1.júlí næstkomandi og æfa og leika með unglingaliðum félagsins.

Egill Orri þreytti frumraun sína í meistaraflokki Þórs síðasta sumar og hefur þegar leikið 17 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands og skorað í þeim eitt mark.

Arnar Geir Halldórsson, yfirþjálfari Þórs

,,Eitt af okkar helstu markmiðum í afreksstarfi er að úr unglingastarfi Þórs komi reglulega leikmenn sem séu nægilega góðir til að komast í atvinnumennsku erlendis. Við teljum að með því að samþykkja kauptilboð Midtjylland séum við að gera Agli kleift að taka gott skref í átt að því.

Það verður söknuður af Agli í okkar starfi en á sama tíma erum við stoltir af því að veita honum tækifæri til að taka þetta skref á sínum ferli. Við bindum miklar vonir við að hjá Midtjylland muni Egill fá úrvals umhverfi til að halda áfram að bæta sig í fótbolta og þroskast og þróast í vegferð sinni að því að verða fótboltamaður í fremstu röð.

Skiptin ganga í gegn í sumar og munum við hér eftir sem hingað til hjálpa Agli við að vera sem best undirbúinn fyrir að færa sig um set til Danmerkur.“ 

Samningurinn handsalaður við Flemming Broe, yfirmann FCM akademíunnar, í Danmörku í gær.

Á toppnum í Danmörku

FC Midtjylland er eitt af stærstu félögum Danmerkur og situr aðallið félagsins um þessar mundir í efsta sæti dönsku Superligunnar en Midtjylland hefur þrívegis á síðustu 10 árum hampað danska meistaratitlinum. Félagið leggur mikið upp úr þróun ungra leikmanna og hefur á að skipa einu öflugasta unglingastarfi Danmerkur og þar með Evrópu í dag.

Við óskum Agli til hamingju með þetta flotta skref og hlökkum til að fylgjast með honum vaxa og dafna í Danmörku þegar þar að kemur og njótum þess að fylgjast með honum í Þórsbúningnum þangað til.

Egill undirritar samninginn í viðurvist foreldra sinna.