Einn frá Þór og tvær úr KA/Þór á meðal tíu efstu

Bjarni Guðjón Brynjólfsson og Ragnar Sverrisson þegar hinn fyrrnefndi var kjörinn íþróttakarl Þórs 2…
Bjarni Guðjón Brynjólfsson og Ragnar Sverrisson þegar hinn fyrrnefndi var kjörinn íþróttakarl Þórs 2022. Mynd: Skapti Hallgrímsson - akureyri.net.

Kjöri íþróttafólks Akureyrar verður lýst í Hofi þriðjudaginn 24. janúar.

ÍBA hefur birt lista yfir tíu efstu karla og tíu efstu konur í kjörinu á íþróttafólki Akureyrar fyrir árið 2022. Á þeim listum eru Bjarni Guðjón Brynjólfsson, knattspyrnu- og íþróttakarl Þórs, og tveir leikmenn úr handknattleiksliði KA/Þórs, Rakel Sara Elvarsdóttir og Rut Jónsdóttir. 

Dagskrá hátíðarinnar ásamt lista yfir tíu efstu konur og tíu efstu karla í kjörinu má sjá hér í frétt á vef ÍBA.