Emma og Hafdís tóku þátt í UEFA móti með U16 landsliði Íslands

Emma í treyju númer 20 og Hafdís númer 21.
Emma í treyju númer 20 og Hafdís númer 21.

Tveir leikmenn Þórs/KA héldu nýlega til Finnlands með U16 landsliðinu á UEFA Development Tournament. Það voru þær Emma Júlía Cariglia (2011) og Hafdís Nína Elmarsdóttir (2010).

Íslenska liðið lék þrjá leiki í mótinu, gegn Unverjum, Írum og Finnum. Því miður náði liðið ekki að skora mark og tapaði öllum leikjunum.


Hafdís Nína var í byrjunarliðinu í tveimur leikjum og Emma Júlía í einum, og komu þær báðar við sögu í öllum þremur leikjum liðsins.