Æfingamót 7.flokks síðastliðinn sunnudag

Eitt af fögnum sunnudagsins.
Eitt af fögnum sunnudagsins.

Síðastliðinn sunnudag stóðu nágrannar okkar KA fyrir æfingamóti fyrir 7.flokka KA, KA/ÞÓRS og Þórs, keppt var í KA heimilinu. Fengu þjálfarar 7.flokks þeir Jón Ólafur og Jonn Rói, Dag Guðnason sér til aðstoðar. Þór mætti með fjögur lið og er ekki annað hægt að segja en stemningin hafi verið frábær. Keppt var að tveim völlum og eins og alltaf skiptir þjálfarateymið miklu málið varðandi þessi mót. Þau eru einmitt haldin til að æfa keppni, að geta leiðbeint í leik og til að hafa gaman. Við þökkum nágrönnum okkar fyrir frumkvæðið og hlökkum til næstu æfingamóta.