Félagsgjaldið innheimt á næstunni

Árgjald Íþróttafélagsins Þórs fyrir árið 2023 er 5.000 krónur. Innheimta hefst í gegnum heimabanka á næstunni. Fólk sem telur sig vera með félagsaðild en fær ekki greiðsluseðil í heimabanka er beðið um að snúa sér til framkvæmdastjóra - reimar@thorsport - sími 461 2080. Sama á við um fólk sem hefur áhuga á að ganga í félagið.

Halló, Þórsarar!

Nú er komið að því að greiða árgjaldið. Á næstu dögum mun detta inn á heimabankann hjá okkur greiðsluseðill fyrir árgjaldi félagsins. Það skiptir félagið okkar gríðarlega miklu máli að félagsgjaldið sé greitt. Framundan eru ennþá frekari breytingar fyrirhugaðar í Hamri og treystum við mikið á innheimtu árgjaldsins í því samhengi.

Aðalstjórnin er með hugmyndir um að setja nýjar merkingar innanhúss og að utan. Vonandi sjáum við það gerast fljótlega á nýju ári. Almennt viðhald á aðstöðunni okkar allri er einnig tekið af þessu framlagi félagsmanna.

Það er mikið líf í félaginu okkar núna, mikið af jákvæðu og kraftmiklu fólki í starfinu. Nýtum meðbyrinn til að gera gott starf enn betra.

Greiðum árgjaldið sem fyrst.

Bestu kveðjur,
Nói Björnsson formaður Þórs