Fimm Þórsarar boðuð á úrtaksæfingar

U15 kvenna annars vegar og U16 karla hins vegar koman saman til æfinga í komandi viku.

Karen Hulda Hrafnsdóttir er fulltrúi Þórs í 28 manna úrtakshópi U15 sem kemur saman til æfinga í Miðgarði dagana 25.-27. október næstkomandi.

Smelltu hér til að sjá hópinn í heild sinni.

Ásbjörn Líndal Arnarsson, Einar Freyr Halldórsson, Sigurður Jökull Ingvason og Sverrir Páll Ingason eru í 27 manna úrtakshópi U16 sem kemur saman til æfinga í Miðgarði dagana 24.–26. október næstkomandi.

Smelltu hér til að sjá hópinn í heild sinni.

Óskum þessum flottu fulltrúum Þórs til hamingju með valið og góðs gengis á æfingunum.